Vann 2 milljónir í Jókernum

Heppinn lottóspilari er tveimur milljónum króna ríkari eftir Lottóúrdrátt kvöldsins. Vinninginn fékk hann í Jókernum. Fyrsti vinningur kvöldsins gekk hins vegar ekki út að þessu sinni en hann hljóðaði upp á rúmar 6,3 milljónir króna.

Einn hlaut hins vegar annan vinninginn og fær rúmlega 277 þúsund krónur að launum. Þá fengu tveir annan Jókervinninginn sem gaf hvorum fyrir sig 100 þúsund krónur í vasann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert