Þessa dagana spreyta krakkar sig á því að búa til tónlist á námskeiði Snjalltóna þar sem ipadar eru notaðir til tónsköpunar. Björn Kristjánsson, tónlistarkennari, segir gæðin á tónlistinni sem þau gera alltaf koma sér á óvart.
Á föstudaginn voru lokatónleikar á námskeiði þar sem mbl.is fékk tóndæmi ásamt því að ræða við Björn og tvo nemendur.
Hægt er að kynna sér námskeiðin á snjalltonar.is