Erlendi ferðamaðurinn sem hneig niður við Gullfoss á laugardaginn er látinn. Um var að ræða eldri konu frá Þýskalandi sem glímt hafði við hjartveiki.
Erlendir læknar á vettvangi hófu þegar í stað endurlífgun en ekki reyndist unnt að bjarga konunni sem var úrskurðuð látin á sjúkrahúsi í Reykjavík.
Lögregla og sjúkralið kom á vettvang og flutti þyrla Landhelgisgæslunnar konuna til Reykjavíkur.
Frétt mbl.is: Flutt með þyrlu á bráðamóttöku