Fiskar á þurru landi

Mynd/Claus Sterneck/claus-in-iceland.com

Vörubíll missti nokkra kassa af fiski í Álftafirði um 10 km frá Súðavík nú fyrir stuttu. Fiskurinn dreifðist um veginn eins og sjá má af meðfylgjandi myndum en megnið af honum endaði úti í móa utan vegarins.

Að sögn sjónarvotts var ekki um alvarlegt óhapp að ræða og er vegurinn greiðfær. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert