Unglingar slösuðust á vespu

Valdís Þórðardóttir

Fjórtán ára gamall ökumaður vespu missti stjórn á ökutækinu á gangstíg við Spöngina í Grafarvogi í gærkvöldi. Bæði hann og farþeginn, einnig 14 ára, voru með áverka eftir fallið.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var ökumaðurinn með áverka í andliti en farþeginn á hendi.

Lögreglan hafði samband við foreldra piltanna þeim tilkynnt um málið. Foreldrarnir ætluðu að fara með syni sína á slysadeild og láta gera að sárum þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert