Þingvallavegur opnaður á nýjan leik

Búið er að opna Þingvallaveg á ný.
Búið er að opna Þingvallaveg á ný. Ljósmynd/ Sigrún Eggertsdóttir

Búið er að opna Þingvallaveg á ný, en veginum var lokað um hálfsexleytið í dag þegar alvarlegt mótorhjólaslys varð við Leirvogsá.  

Maðurinn á mótorhjólinu var einn á ferð og virðist hafa misst vald á hjólinu og lent utan í vegriði að sögn lögreglu. Var hann fluttur á  Landspítalann og var ástand hans talið alvarlegt.

Þingvallavegur lokaður eftir mótorhjólaslys

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert