Talið að barnið hafi verið sofandi

Handtakan í Kórahverfinu.
Handtakan í Kórahverfinu. mbl.isÓmar Óskarsson

Karl á þrítugsaldri hefur verið handtekinn eftir að bíl var stolið við leikskóla í Salahverfinu í Kópavogi á fjórða tímanum í dag, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni. 

Tveggja ára barn var í bílnum þegar honum var stolið, en bíllinn fannst um 25 mínútum síðar í Kórahverfinu.

Talið er að barnið hafi verið sofandi meðan á þessu stóð. Lögreglan hóf víðtæka leit að bílnum um leið og tilkynningin barst, en þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð til aðstoðar, að því er lögreglan greinir frá. 

Bíllinn hafði verið skilinn eftir í gangi þegar honum var stolið. Maðurinn sem nú er í haldi vegna málsins hefur áður komið við sögu hjá lögreglu, m.a. vegna nytjastuldar.

Frétt mbl.is: Fjórir handtóku mann í Kórahverfi 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert