Malbikað á Keflavíkurflugvelli (myndir)

Umfangsmiklar framkvæmdir standa nú yfir á flugbrautum á Keflavíkurflugvelli þar sem verið er að malbika báðar flugbrautirnar, leggja nýjar flýtireinar sem munu gera það að verkum að brautirnar nýtast enn betur, skipta út öllum raflögnum og flugbrautarljósum fyrir díóðuljós sem nota mun minni orku.

Framkvæmdir hófust sumarið 2016 var hafist við norður-suður flugbrautina og nú stendur yfir vinna við austur-vestur brautina og er áætlaður heildarkostnaður verksins um sjö milljarðar króna að sögn Guðna Sigurðssonar, upplýsingafulltrúa ISAVIA.

Mikið er vandað til verka við malbikunarframkvæmdir á flugvöllum til þess að yfirborðið endist sem best. Ráðast þarf í svona framkvæmd á um 15-20 ára fresti.

Kostnaður við framkvæmdina er um sjö milljarðar króna en malbikunarhluti framkvæmdarinnar jafnast á við allar malbikunarframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu á einu ári. Malbikunarstöð var reist innan flugvallarsvæðisins og um er að ræða um það bil 100.000 rúmmetra af efni.

Hvor flugbraut um sig er um 60 metra breið og 3.000 metra löng. Til að setja það í samhengi dygði malbikið sem notað er í heildarframkvæmdina til að malbika um 90 km langan tveggja akreina þjóðveg. Hvað rafmagnshluta framkvæmdarinnar varðar er um að ræða um það bil 3.700 ljós og 150 kílómetra af rafmagnsköplum. Settur verður upp öflugur stjórnbúnaður í flugturni fyrir allt flugbrautaljósakerfið.

Hundrað starfsmenn frá 12 til 15 fyrirtækjum

Verkið var boðið út og varð ÍAV fyrir valinu sem aðalverktaki. Fjöldi annarra fyrirtækja tekur  þátt sem undirverktakar; Hlaðbær Colas sér um malbiksvinnuna en einnig koma að verkinu breskir og norskir verktakar. Verkfræðistofan Efla sér um eftirlit með framkvæmdinni. Um 100 starfsmenn vinna beint í þessu verki frá 12 til 15 fyrirtækjum.

Framkvæmd sem þessi á flugvelli í fullum rekstri, á metári, er áskorun. Verkið hefur verið í undirbúningi um nokkurra ára skeið og mikið samráð haft við flugrekendur um áfangaskiptingu og framgang þess. Sérstakt mat var gert á nýtingu vallarins og hvort minnkuð þjónusta á framkvæmdatíma hefði áhrif á flugstarfsemina.

Matið sýndi að nokkra daga á hvoru ári framkvæmdanna yrði ekki hægt að lenda á Keflavíkurflugvelli um nokkurra klukkustunda skeið. Raunin hefur verið sú hingað til að þessi skipti hafa verið færri en matið leiddi í ljós og einungis örfáar vélar hafa þurft frá að hverfa vegna framkvæmdanna og hafa þær þá yfirleitt lent á Akureyrarflugvelli eða Egilsstaðaflugvelli.

Auk framkvæmda við flugbrautir fer fram endurnýjun á öllu rafmagnsdreifikerfi til notenda á flugvellinum og öllum blindaðflugsbúnaði við flugbrautir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert