Ógnuðu öryggisverði með skotvopni

Sérsveit ríkislögreglustjóra stöðvaði för fólksins.
Sérsveit ríkislögreglustjóra stöðvaði för fólksins.

Fjórir einstaklingar voru handteknir á níunda tímanum í kvöld í þágu rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á atviki sem varð í verslun á höfuðborgarsvæðinu um kvöldmatarleytið í kvöld.

Þar var öryggisverði ógnað með skotvopni, en sá sem það gerði fór á brott á bifreið ásamt þremur öðrum. Það var síðan sérsveit ríkislögreglustjóra sem stöðvaði för fólksins, tveggja karla og tveggja kvenna, nokkru síðar.

Rannsókn málsins er á frumstigi, en eftir er að yfirheyra fjórmenningana. Lögregla veitir ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert