Útilaug við Sundhöllina í gagnið

Nýja aðstaðan, með útilaug, heitum pottum og öðru, er glæsileg. …
Nýja aðstaðan, með útilaug, heitum pottum og öðru, er glæsileg. Kostnaður er um 1,6 milljarðar króna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Byrjað var í gær að dæla vatni í nýja útilaug sem er hluti af viðbyggingu við Sundhöll Reykjavíkur. Útisvæðið er hæð neðar en aðkoma frá Barónsstíg, þar sem nýr afgreiðslusalur hefur verið byggður.

Einnig hefur verið byggður nýr búningsklefi kvenna og aðstaða fyrir fatlaða. Karlaklefinn sem fyrir er hefur verið lagfærður. Úr afgreiðslusalnum sést vel yfir laugarsvæðið, en við suðurmörk þess eru bæði útilefar og eimbað.

Útisvæðið, þar sem eru 25 metra laug, vaðlaug, tveir pottar og eimbað, er svo umlukt byggingum á alla vegu svo þar ætti að verða skjólgott, að því er segir í umfjöllun um nýju laugina í Morgunblaðinu í dag.

Steinþór Einarsson frá ÍTR, Brá Guðmundsdóttir afgreiðslustjóri og lengtst til …
Steinþór Einarsson frá ÍTR, Brá Guðmundsdóttir afgreiðslustjóri og lengtst til hægri er Logi Sigurfinnsson forstöðumaður.
Heitu pottarnir eru skemmtilega hannaðir.
Heitu pottarnir eru skemmtilega hannaðir. Eggert Jóhannesson
Nýr afgreiðslusalur Sundhallarinnar er glæsilegur.
Nýr afgreiðslusalur Sundhallarinnar er glæsilegur. Eggert Jóhannesson
Útilaugin nýja er 25 metra löng.
Útilaugin nýja er 25 metra löng. Eggert Jóhannesson
Nýja útisvæðið og eldri bygging þykja falla vel saman og …
Nýja útisvæðið og eldri bygging þykja falla vel saman og mynda góða heild. Eggert Jóhannesson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert