Fagna tillögunum sem auka bjartsýni

Frá baráttufundi Samtaka ungra bænda í haust undir yfirskriftinni Laun …
Frá baráttufundi Samtaka ungra bænda í haust undir yfirskriftinni Laun fyrir lífi - ungra bænda og íslenskra sveita. Ljósmynd/Samtök ungra bænda

Samtök ungra bænda fagna tillögum starfshóps ráðuneytisstjóra um aðgerðir til að koma til móts við þá stöðu sem íslenskur landbúnaður, og ekki síst ungir bændur, standa frammi fyrir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn samtakanna.

Vona að stjórnvöld taki mið af ráðgjöfinni

„Vonandi verður það svo að stjórnvöld muni taka mið af þessari vönduðu ráðgjöf og sýna þannig í verki skilning sinn á gjörbreyttum rekstrarskilyrðum vegna aukinnar vaxtarbyrði til viðbótar við verulegar verðhækkanir á öllum aðföngum,“ segir í tilkynningu stjórnar.

Þá segir að fyrir unga bændur skipti tillögur hópsins um nýliðunarstuðning miklu máli. Þær séu mikilvægt skref í áttina að því að leiðrétta þá erfiðu stöðu ungra bænda sem hafa hafið búskap á síðustu árum og munu tryggja íslenskum sveitum líf til lengri framtíðar.

Þá segir að miklu muni um fjárhagslega stuðninginn sem einnig sé almenn viðurkenning á því að þjóðin þurfi á ungu fólki að halda til þess að standa vörð um áframhaldandi fæðuöryggi sitt og framleiðslu fyrsta flokks matvæla við skilyrði sem væntanlega eru hvergi í heiminum betri en einmitt á Íslandi.

Fagna því að tillögur taki ekki eingöngu á þeirra stöðu

Ungir bændur fagna því að tillögur ráðuneytisstjórahópsins einskorðist ekki við unga bændur heldur taki þær einnig á öðrum þáttum þar sem skuldir eru miklar eða langvarandi afkomubrestur hefur verið til staðar. Þannig muni mikið um áherslu á greiðslur út á fjárfestingastuðning í því vaxtaumhverfi sem þeir búi við til viðbótar við þann hraða í afborgunum sem almennt hefur verið krafist.

Þá segir að býlisstuðningur til sauðfjárbænda og tillögur um stuðning til nautgripabænda með holdagripi séu einnig á meðal mikilvægra atriða í tillögum hópsins.

Ungir bændur segja að enda þótt öllum stuðningstillögum verði hrint í framkvæmd sé ljóst að áfram verði til staðar stórt gat í rekstri fjölmargra bænda sem ýmist falla undir þessar stuðningsaðgerðir eða ekki. Þeir muni áfram þurfa að drýgja tekjur sínar til að mynda með aukavinnu utan búrekstursins með tilheyrandi fórnarkostnaði gagnvart fjölskyldulífi sínu og frítíma og að við slíkar aðstæður sé illt að búa.

Betur má ef duga skal

Þá víkja þeir orðum sínum að endurskoðun búvörusamninga sem átti að eiga sér á árinu en ekki hefur enn orðið af. Þeir segjast vonast til að vinna ráðuneytisstjórahópsins verði grunnur fyrir ríka samstöðu þar sem gripið verði tafarlaust til aðgerða.

„Vissulega má betur ef duga skal en hér kveður við tón sem eykur ungum bændum bjartsýni á betri tíð með blóm í haga,“ eins og segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka