Gagnrýna „athafnaleysi ráðherra“

Katrín Jakobsdóttir.
Katrín Jakobsdóttir. mbl.is/Eyþór

Félag atvinnurekenda, VR og Neytendasamtökin hafa sent erindi til Katrínar Jakobsdóttur, starfandi matvælaráðherra, þar sem hún er hvött til að beita sér fyrir því að nýsamþykkt búvörulög verði felld úr gildi.

Lögin fela m.a. í sér und­anþágu afurðastöðva í kjötiðnaði frá sam­keppn­is­lög­um og ger­ir þeim auðveld­ara fyr­ir að sam­ein­ast.

Bent er á að Katrín hafi verið í lykilstöðu til að hafa áhrif á framgang málsins á Alþingi þar sem hún hafi verið starfandi matvælaráðherra ásamt því að vera forsætisráðherra.

„Í stað þess að bregðast við viðvörunum Samkeppniseftirlitsins og fjölda samtaka við því að málið yrði að lögum, hafi hún komið í fjölmiðla eftir samþykkt þess og sagst ætla að biðja matvælaráðuneytið að skoða hvort hin nýju lög fari í bága við EES-samninginn. Samtökin benda á að í reglum ríkisstjórnarinnar sé gert ráð fyrir að slíkt mat fari fram áður en mál eru lögð fram á Alþingi, en ekki eftir samþykkt þeirra,” segir í tilkynningu frá Félagi atvinnurekenda þar sem fjallað er um erindið. 

Þar kemur einnig fram að meðferð málsins hafi gengið í berhögg við 44. grein stjórnarskrárinnar þar sem kemur fram að ekki megi samþykkja lagafrumvarp fyrr en það hafi farið í gegnum þrjár umræður á Alþingi. Málinu hafi verið gerbreytt við aðra umræðu og þingmálið sem var samþykkt hafi því verið allt annað en umsagnaraðilar höfðu tekið afstöðu til í samráðsferli og í umsögnum Alþingis og annað en það sem þingmenn ræddu við fyrstu umræðu.

„Að mati samtakanna ber ráðherra við þessar aðstæður augljós skylda til að aðhafast tafarlaust að eigin frumkvæði til að tryggja þrennt: Að lagasetningin sé í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Að mat á áhrifum lagasetningarinnar sé í samræmi við reglur ríkisstjórnarinnar. sjálfrar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og þingsályktunartillagna. Að meðferð Alþingis á málinu sé í samræmi við stjórnarskrána," segir í erindinu.

„Beinast liggur við að ráðherra beiti sér fyrir því að lög nr. 1322/2024 verði felld úr gildi. Athafnaleysi ráðherra í þessu máli er líklegt til að skaða hagsmuni neytenda, launþega og verslunar í landinu. Óskað er svars hið fyrsta um það til hvaða ráðstafana ráðherra hyggst grípa.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka