Keypti miða í búð og fær 3,5 milljónir

Einn heppinn hreppti þriðja vinning í Víkingalottó.
Einn heppinn hreppti þriðja vinning í Víkingalottó.

Einn hreppti þriðja vinning í Víkingalottói kvöldsins en sá heppni keypti miðann í Krambúðinni á Selfossi. Eru vinningslaunin rúmar 3,5 milljónir króna.

Enginn hlaut fyrsta eða annan vinning. 

Þá voru þrír áskrifendur með annan vinning í jóker kvöldsins og fá þeir hver um sig 100.000 krónur fyrir vikið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert