Atvinnuleysi 3,5% í febrúar

Í febrúar voru 8.200 manns atvinnulausir.
Í febrúar voru 8.200 manns atvinnulausir. mbl.is/Árni Sæberg

Í febrúar voru 8.200 manns atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar en þar segir að árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 3,5%, hlutfall starfandi var 78,4% og atvinnuþátttaka 81,3%.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi minnkaði um 0,7 prósentustig á milli mánaða á sama tíma og hlutfall starfandi jókst um 0,6 prósentustig en atvinnuþátttaka stóð nánast í stað.

Breytt aðferð og mat á íbúafjölda á Íslandi sýnir að nokkur þörf er á að endurskoða áætlaðan mannfjölda í Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar (vogir rannsóknarinnar). Því ber að líta á þær tölur sem birtar hafa verið fyrir árið 2024 sem bráðabirgðatölur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert