Vináttubönd í kjölfar Food & Fun hátíðarinnar

Með Jessa Miller og Óla Hall framkvæmdastjóra Food & fin …
Með Jessa Miller og Óla Hall framkvæmdastjóra Food & fin tókst svo mikill vinskapur eftir fyrstu heimsókn Millers til Íslands, að það endaði með því að Miller bað Óla um að vera einn af svaramönnum sínum í brúðkaupinu sínu í Washington D.C. Samsett mynd

Jesse Miller sem er gestakokkurinn í ár á veitingastaðnum Duck & Rose á Food & Fun hátíðinni sem stendur yfir þessa dagana fram til 10. mars næstkomandi er orðinn stór partur af Food & Fun fjölskyldunni eftir samstarfið síðustu ár. Hann hefur komið nokkrum sinnum til Íslands og upplifað alls konar útgáfur af hátíðinni, bæði á Íslandi og í Finnlandi. Hann var líka í fyrra gestakokkurinn í eldhúsinu hjá Duck & Rose þar sem hann heillaði matargestina upp úr skónum.

Bað hann um að vera svaramann sinn

Með Miller og Óla Hall framkvæmdastjóra Food & fin tókst svo mikill vinskapur eftir fyrstu heimsóknina hans, að það endaði með því að Miller bað Óla um að vera einn af svaramönnum sínum í brúðkaupinu sínu í Washington D.C. „Þessi bón var mikil heiður fyrir mig en því miður missti ég af brúðkaupinu vegna Covid takmarkanna sem voru þá enn í gildi,“ segir Óli og bætir við að Covid hafi haft áhrif á margt, meira segja á Food & Fun.

Listamaðurinn fengið útrás í eldhúsinu

Miller er yfirkokkur á veitingastaðnum Pennyroyal Station í Mt. Ranier hverfi Washington D.C. og er góðkunningi Food & Fun hátíðarinnar. Bakgrunnur hans er í listageiranum þar sem hann var á góðri leið að verða atvinnulistmálari þegar ástríðan á mat og lífið í eldhúsinu dró hann til sín. Síðan þá hefur listamaðurinn í honum fengið útrás í eldhúsinu þar sem hann var m.a. á bakvið hinn geysivinsæla veitingastað Bar Pilar í Washington D.C.

Matreiðsla Miller á Bar Pilar sækir innblástur frá nærliggjandi sveitum og birgjum með áherslu á ferska, árstíða- og staðbundna vöru. Réttirnir eru einfaldir en jafnframt ævintýralegir og breytast í takt við framboðið hverju sinni, sem er einmitt hluti af ævintýrinu sem verður í boði á Food & Fun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert