Eftirsóknarverðir þakbarir í Lundúnaborg

Einstök upplifun að njóta þess að vera með þetta stórfenglega …
Einstök upplifun að njóta þess að vera með þetta stórfenglega útsýni með drykk við hönd. Samsett mynd

Hér eru nokkrir mjög líflegir og spennandi þakbarir í London. Óhætt er að fullyrða að staðsetning þeirra, stórfenglegt útsýni, matur og drykkjarframboð eru svo sannarlega þess virði að kíkja á þá við gott tækifæri.

THE SHARD

Útsýnispallur The Shard býður upp á óviðjafnanlegt 360 gráðu útsýni yfir London frá hæstu byggingu Bretlands. Sjá nánar hér.

Ljósmynd/Instagram

SKY GARDEN

Sky Garden býður upp á töfrandi innanhúsgarð með gólfsíðum gluggum sem ná til lofts og býður upp á stórkostlegt útsýni yfir borgina. Sjá nánar hér.

Ljósmynd/Instagram

MADISON ROOF TOP BAR

Er staðsettur ofan á One New Change-verslunarmiðstöðinni nálægt St. Paul's-dómkirkjunni og býður upp á glæsilegt útsýni yfir hvelfinguna og sjóndeildarhringinn í kring. Sjá nánar hér.

Ljósmynd/Instagram

HORIZON  22

Hæsti ókeypis útsýnispallur í Evrópu. Þakbarinn er staðsettur á 58. hæð í Bishopsgate. Þakbarinn býður upp á stórbrotið og víðáttumikið útsýni yfir borgina. Sjá nánar hér.

Ljósmynd/Instagram

FLORATTICA ROOF TOP

Falin blettur með innréttingum sem eru innblásnar af ríkri textílsögu Austur-London. Þakbarinn býður upp á frábæran mat og drykki á notalegri verönd. Sjá nánar hér.

Ljósmynd/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert