Lagðist fyrir lest en lifði af

Kona í Ísrael slapp ómeidd eftir að hún lagðist á brautarteina í þann veginn sem hraðlest kom aðvífandi. Talið er að konan hafi verið í sjálfsmorðshugleiðingum.

Myndskeið úr öryggismyndavél, sem sýnir þetta atvik, var sýnt í ísraelska sjónvarpinu. Lögregla var kölluð til og flutti hún konuna á sjúkrahús.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert