Forsætisráðherra leikur sér með fyrirtæki

Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sakar  forsætisráðherra um að  leika sér að fyrirtækjum. Hann er ósáttur við að Jóhanna Sigurðardóttir sem sagði argreiðslur HB Granda siðlausar með öllu meðan umsömdum launahækkunum starfsfólks væri frestað. Ráðherrann verði að svara því hvað hún telji siðlega ávöxtun.  

Vilhjálmur segir að þegar ráðherrann taki svona til orða verði hún líka að svara því hvað hún telji siðlega ávöxtun hjá þeim sem séu að hætta fé í atvinnulífinu. Menn geti valið að leggja peningana frekar í banka. Hann segir ráðherrann sverta fyrirtækið í augum viðskiptavina, starfsfólks og fjárfesta

Hann segir fyrirtæki reyna að halda í starfsfólk sitt og gera eins vel við það og kostur er. Þau þurfi ekki á þeim skilaboðum að halda frá forsætisráðherrra að þau gangi fram með ósiðlegum hætti þegar þau hafi enga samninga brotið og ekki gert neitt af sér annað en að byggja upp sína starfsemi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert