Verði íslenskum höfundarréttarlögum ekki breytt þá eru allar
líkur til þess að ljósmyndum af byggingum Guðjóns Samúelssonar
arkitekts og fyrrum húsasmíðameistara ríkisins verði hent út af
Wikipedia og eigi þangað ekki afturkvæmt nema að breyttum lögum.
Raunar á þetta ekki einungis við um byggingar Guðjóns heldur allar
þær byggingar sem hannaðar eru af núlifandi arkitektum og þeim sem
látist hafa á síðustu 70 árum.
Þetta segir Salvör Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni og
tölvunotkun í námi og kennslu við Menntavísindasvið Háskóla
Íslands, en hún gerir málið að umtalsefni í færslu á bloggi
sínu.
Í samtali við mbl.is segir Salvör að það yrði mikið áfall fyrir
Ísland og ekki síst íslenska ferðaþjónustu ef þessi fyrirætlun
Wikipedia gengur eftir, því Guðjón teiknaði margar af þeim
byggingum sem teljast til helstu kennileita höfuðborgarinnar.
Meðal merkustu bygginga hans má nefna Hallgrímskirkju,
Þjóðleikhúsið, Þjóðminjasafnið, Landakotskirkju, aðalbyggingu
Háskóla Íslands, Eimskipafélagshúsið, Hótel Borg, aðalbygging
Landsspítalans, Listasafn Íslands og Sundhöllin. Auk þess teiknaði
hann Gamla mjólkursamlagið í Borgarnesi, Akureyrarkirkju og
Héraðsskólann á Laugarvatni.
Að sögn Salvarar hefur myndum í sameiginlegu myndasafni Wikipedia
fjölgað hratt að undanförnu og telja nú um 5,4 milljónir myndir.
Hjá Wikipedia hefur verið tekin upp sú starfsregla að birta ekki
myndir nema þær séu með opnu og frjálsu höfundarleyfi.
Og þar stendur hnífurinn í kúnni, að sögn Salvarar, því samkvæmt
íslenskum höfundaréttarlögum þá helst hann þangað til liðin eru 70
ár frá því að höfundur lést. „Hús teljast hönnunarverk og
höfundarréttarlög gilda um þau,“ segir Salvör og bendir á að víða í
Bandaríkjunum sem og í Svíþjóð sé hins vegar að finna sérstaka
grein í höfundarréttarlögum sem undanskilja myndir af byggingum.
Hins vegar sé enga slíka grein að finna í íslensku lögunum.
„Þetta er afleitt fyrir íslenska ferðaþjónustu. Lögin gera það t.d.
að verkum að það má ekki myndskreyta umfjöllun um gistimöguleika
með mynd af umræddu hóteli nema ýmist með leyfi arkitektsins sem
hannaði hótelið eða ef viðkomandi hefur verið látinn í meira en 70
ár,“ segir Salvör og bætir við: „Það verður að breyta þessu. Þetta
er öllum til óþurftar.“
Aðspurð segist hún telja að það væri lítið mál að kippa málinu í liðinn og færa íslensku höfundaréttarlögin til samræmis við það sem þekkist í Bandaríkjunum og Svíþjóð, þannig að það sé ekki höfundarréttarvarið að birta myndir af nánasta umhverfi fólks.