Hvassar steinflísar sprengja hjóladekk

Steinflísar á götum og stígum angra hjólamenn.
Steinflísar á götum og stígum angra hjólamenn. Árni Torfason

Nú þegar bensínverð er orðið svo hátt sem raun ber vitni, er ein leið Frónbúa til að spara aurinn í fjárútlátum heimilisins, að nota einkabílinn minna en fara þess í stað um á reiðhjóli.

Það er bæði heilsusamlegt og hressandi að hjóla á milli staða og ekki þarf að kaupa bensín á hjólafákinn. En vönduð dekk geta verið dýr og því er margt reiðhjólafólkið orðið langþreytt á hvössum steinflísum sem eru í sandi þeim sem borinn er á hjólreiða- og göngustíga vegna hálku.

Þessar flísar bora sér leið inn í dekkin og sprengja þau. Hjólreiðafólk tók fyrst eftir þessum steinflísum fyrir um þremur árum.

Sjá nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert