Ólafur skoraði mikilvægt mark

Ólafur Ingi Skúlason skoraði í kvöld.
Ólafur Ingi Skúlason skoraði í kvöld. mbl.is/Ómar

Ólafur Ingi Skúlason gulltryggði Zulte-Waregem frá Belgíu sæti í 3. umferð Evrópudeildar UEFA í kvöld þegar hann skoraði þriðja mark liðsins gegn Zawisza Bydgoszcz í Póllandi og innsiglaði 3:1 útisigur.

Zulte-Waregem hafði unnið fyrri leikinn 3:1 og sigraði þar með 5:2 samanlagt. Liðið mætir Shakhtyor Soligorsk frá Hvíta-Rússlandi í 3. umferð. Ólafur lék allan leikinn.

Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn með Krasnodar frá Rússlandi sem vann Sillamäe Kalev frá Eistlandi auðveldlega, 5:0, og 9:0 samanlagt.

Hjálmar Jónsson lék allan leikinn með IFK Gautaborg sem tapaði 0:1 fyrir Györi frá Ungverjalandi á heimavelli en komst samt áfram, 3:1 samanlagt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert