Helgi Valur samdi við AGF til tveggja ára

Helgi Valur Daníelsson er kominn til AGF í Danmörku eftir …
Helgi Valur Daníelsson er kominn til AGF í Danmörku eftir dvöl í Portúgal. Eva Björk Ægisdóttir

Helgi Valur Daníelsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við AGF í Danmörku eftir að hafa leikið með Belenenses í Portúgal á síðasta tímabili.

Á Twitter-síðu Belenenses er Helga þakkað fyrir framlag sitt til félagsins og óskað velfarnaðar í nýjum verkefnum í Danmörku, en AGF féll úr dönsku úrvalsdeildinni í vor.

Helgi segir í samtali við danska fjölmiðla að honum og fjölskyldu hans hafi ekki líkað lífið nægilega vel í Portúgal. „Ég skoðaði aðstæður hjá AGF í vikunni og eftir það var ákvörðunin auðveld. Þetta er spennandi áskorun,“ sagði Helgi.

Helgi er 33 ára gamall og spilaði í Svíþjóð áður en hann fór til Portúgals. Þá hefur hann einnig reynt fyrir sér á Englandi og í Þýskalandi, en er uppalinn hjá Fylki hér heima.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert