Pétur: Lélegt mark sem við fengum á okkur

Pétur Viðarsson miðvörðurinn sterki í liði FH var ekki sáttur við markið sem KR-ingar skoruðu í Kaplakrika í kvöld þar sem FH og KR skildu jöfn, 1:1, í Pepsi-deildinni í knattspyrnu.

„Þetta voru ekki nógu góð úrslit. Við fengum á okkur lélegt mark þegar við vorum komnir með leikinn í okkar hendur. Við ætluðum okkur auðvitað að fá þrjú stig en eitt var niðurstaðan og við verðum að sætta okkur við það,“ sagði Pétur við mbl.is en hægt er að skoða allt viðtalið í spilaranum hér að ofan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert