Dani til Vestmannaeyja

Mikkel Maigaard Jakobsen við undirskriftina.
Mikkel Maigaard Jakobsen við undirskriftina. Ljósmynd/Eyjafrettir

Danski knattspyrnumaðurinn Mikkel Maigaard Jakobsen hefur samið við Eyjamenn um að leika með þeim næstu tvö árin en hann kemur til félagsins frá Esbjerg þar sem hann er alinn upp. Eyjafrettir.is greina frá þessu.

Jakobsen er sóknarsinnaður miðjumaður eða framherji og hann skoraði þrennu fyrir ÍBV á dögunum þegar liðið sigraði Víking frá Ólafsvík 4:2 í Fótbolta.net mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert