„Kátur og glaður“

Bjarni Jóhannsson, þjálfari ÍBV, var bæði kátur og glaður þegar hann ræddi við mbl.is að loknum bikarleiknum gegn FH í gærkvöldi þar sem ÍBV tryggði sér sæti í úrslitaleik Borgunarbikars karla í knattspyrnu með 1:0 sigri. 

Bjarni sagði gríðarlegan dugnað sinna manna fyrst og fremst hafa skilað sigrinum. Sagðist jafnframt vera stoltur af frammistöðu sinna manna. 

ÍBV mætir Val í úrslitaleik keppninnar á Laugardalsvelli. 

Bjarni Jóhannsson
Bjarni Jóhannsson mbl.is/Jóhann
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert