„Núna kom þetta“

Aron Bjarnason sést hér skora þriðja mark sitt gegn Val …
Aron Bjarnason sést hér skora þriðja mark sitt gegn Val í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

„Ég er mjög sáttur,“ sagði Aron Bjarnason sem sýndi hvað í honum býr með þremur mörkum gegn Val á Hásteinsvelli. ÍBV vann leikinn 4:0 og er í góðri stöðu í fallbaráttunni fyrir síðustu umferðina sem fer fram næstkomandi laugardag.

„Þetta var frábær liðsheild í dag og við sýndum að þegar við berjumst getum við unnið hvaða lið sem er,“ sagði Aron en hann var ánægður með að mörkin skyldu detta í dag:

„Ég hef verið svolítið í því að klúðra færum upp á síðkastið og því skemmtilegt að þetta féll með mér í dag. Við höfum verið að skapa fullt af færum en núna kom þetta,“ sagði Aron Bjarnason og var ekkert nema hógværðin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert