Ragnar efstur í kosningu um þann besta

Ragnar (6) fagnar með liðsfélögum sínum eftir leikinn á mánudag.
Ragnar (6) fagnar með liðsfélögum sínum eftir leikinn á mánudag. AFP

Varnarjaxlinn Ragnar Sigurðsson er einn þeirra leikmanna sem tilnefndir eru sem besti leikmaður 16-liða úrslita EM í knattspyrnu. Hægt er að kjósa þann besta hér.

Hægt er að velja á milli eins leikmanns úr hverju liði sem komst í 16-liða úrslitin og er Ragnar fulltrúi okkar Íslendinga.

Frétt mbl.is: Öll Evrópa með augun á Ragnari

Þegar þetta er skrifað er Ragnar langefstur í kosningunni en 39% hafa greitt honum atkvæði sitt. Næstur á eftir honum kemur Frakkinn Antoine Griezmann, með 14% atkvæða. 

Ragnar átti stórleik þegar Ísland vann England, 2:1, á mánudagkvöld. Hann skoraði fyrra mark okkar Íslendinga og hélt skæðum sóknarmönnum Englands niðri.

Ragnar er efstur í kosningunni.
Ragnar er efstur í kosningunni. Ljósmynd/Skjáskot
mbl.is

LEIKIR Í DAG - 27. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 27. APRÍL

Útsláttarkeppnin