Nær Ronaldo Platini?

Cristiano Ronaldo á æfingu portúgalska landsliðsins í gær.
Cristiano Ronaldo á æfingu portúgalska landsliðsins í gær. AFP

Cristiano Ronaldo freistar þess að jafna eða jafnvel slá markamet Michels Platinis frá Frakklandi í úrslitakeppni EM í knattspyrnu þegar Portúgal mætir Póllandi í fyrsta leik átta liða úrslitanna í kvöld.

Platini skoraði níu mörk í lokakeppni EM á sínum tíma en Ronaldo, sem nú hefur skorað í fjórum lokakeppnum, er kominn með átta mörk.

Hann freistar þess þar jafnframt að koma Portúgölum í undanúrslitin en sigurliðið í kvöld mætir annaðhvort Wales eða Belgíu sem eigast við annað kvöld.

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 27. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 27. APRÍL

Útsláttarkeppnin