Swansea semur við Hoffenheim um Gylfa

Gylfi Þór Sigurðsson í baráttu við Yohan Cabaye í landsleik …
Gylfi Þór Sigurðsson í baráttu við Yohan Cabaye í landsleik Frakklands og Íslands í kvöld. AFP

Velska knattspyrnufélagið Swansea City hefur náð samningum við Hoffenheim í Þýskalandi um kaup á Gylfa Þór Sigurðssyni fyrir 7,2 milljónir punda, samkvæmt frétt BBC í dag.

Fregnir hafa verið um samkomulag félaganna í enskum og þýskum miðlum síðustu daga en það hefur ekki verið staðfest.

Gylfi var sem kunnugt er í láni hjá Swansea frá Hoffenheim síðari hluta nýliðins tímabils og skoraði þar sjö mörk í 17 leikjum fyrir liðið í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert