Það stendur ekki takk á samningnum

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var alsæll eftir undirskriftina hjá John Terry í dag en fyrirliði þeirra bláu skrifaði undir eins árs samning.

„Þessi nýi samningur var ekki gerður til þess að segja „takk kærlega fyrir“. Hann er tilkominn vegna frammistöðu hans. Hann er hágæðavarnarmaður. Ég er ánægður að hann verðskuldar þennan samning fullkomlega eftir tímabil þar sem hann hefur nú þegar spilað 40 leiki,“ sagði Mourinho.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert