Tottenham án sterkra leikmanna á Anfield

Harry Kane er ekki orðinn leikfær.
Harry Kane er ekki orðinn leikfær. AFP

Hvorki Harry Kane né Toby Alderweireld verða í liði Tottenham annað kvöld þegar liðið mætir Liverpool á Anfield í 4. umferð ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu.

Kane og Alderweireld eru báðir að jafna sig af meiðslum og sagði knattspyrnustjórinn Mauricio Pochettino að of snemmt væri að tefla þeim fram í leiknum á morgun en báðir leikmennirnir eru á góðum batavegi og stutt í endurkomu þeirra. Þá tekur franski miðjumaðurinn Moussa Sissoko út fyrsta leikinn af þremur í leikbanni sem hann var úrskurðaður í í dag.

Þá staðfesti stjórinn að hollenski markvörðurinn Michel Vorm fengi tækifæri á milli stanganna í leiknum annað kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert