Zlatan búinn að þagga niður í fólki

Zlatan Ibrahimovic og José Mourinho fá mikið hrós.
Zlatan Ibrahimovic og José Mourinho fá mikið hrós. AFP

Phil Jones, varnarmaður Manchester United, fór fögrum orðum um þá Zlatan Ibrahimovic og José Mourinho fyrir framgöngu þeirra á fyrsta tímabilinu á Englandi.

„Hann hefur verið stórkostlegur. Fólk efaðist þegar hann kom í sumar, um hvort hann gæti staðið sig í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur þaggað niður í því núna,“ sagði Jones við Sky, en ummælin eru varla til þess fallin að stöðva prentvélarnar þar sem Zlatan hefur verið á allra vörum með frammistöðu sinni.

„Hann er frábær persóna í klefanum og á vellinum þar sem hann er martröð varnarmanna. Hann á skilið allt það hrós sem um hann er sagt,“ sagði Jones. Hann hrósaði einnig José Mourinho, sem er að stýra United á sínu fyrsta tímabili.

„Hann gefur öllum aukið sjálfstraust, líka þeim sem hafa ekki verið að spila mikið. Ég sé það á æfingum og í leikjum að við erum að njóta þess að spila fótbolta,“ sagði Jones.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert