Hazard útilokar ekki að fara til Real

Eden Hazard gæti skipt um félag.
Eden Hazard gæti skipt um félag. AFP

Eden Hazard, leikmaður Englandsmeistara Chelsea segist ekki útiloka að fara til Real Madrid, komi tilboð frá spænska félaginu. Hazard var einn allra besti leikmaður Chelsea sem vann ensku úrvalsdeildina á nýliðinni leiktíð. 

Hann skoraði 16 mörk í 36 leikjum á leiktíðinni og hefur hann reglulega verið orðaður við brottför frá Chelsea, þó það séu enn þrjú ár eftir af samningi hans við félagið. 

„Auðvitað myndi ég skoða það ef Real Madrid kæmi með tilboð. Það væri frábært að vinna Meistaradeildina en markmið Chelsea er líka að vinna Meistaradeildina, svo ég veit ekki hvað gerist," sagði Belginn í samtali við Sky Sports. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert