Bjarni: van Dijk á versta mögulega stað

Í Vellinum á Símanum Sport í gær var rætt um slysaleg mörk í stórleik Arsenal og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, sem lauk með 3:1-sigri Arsenal.

Gabriel, miðvörður Arsenal, skoraði sjálfsmark með því að slá boltann í netið eftir mistök William Saliba auk þess sem Gabriel Martinelli kom Arsenal yfir að nýju eftir skelfileg mistök Alisson og Virgil van Dijk í öftustu línu Liveprool.

„Þetta sekúndubrot sem Alisson ætlar að koma að sparka í boltann þá er van Dijk akkúrat á versta mögulega stað fyrir hann,“ sagði Bjarni Guðjónsson.

Umræður Bjarna, Margrétar Láru Viðarsdóttur og Tómasar Þórs Þórðarsonar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert