Áfall fyrir enska landsliðsmanninn

Sam Johnstone er markvörður Crystal Palace.
Sam Johnstone er markvörður Crystal Palace. AFP/Paul Ellis

Enski markvörðurinn Sam Johnstone verður að leggjast undir hnífinn vegna meiðsla á olnboga og missir af Evrópumótinu í fótbolta í Þýskalandi í sumar. 

Johnstone, sem er leikmaður Crystal Palace, hefur verið fastamaður í leikmannahópi Englands sem varamarkvörður. 

Meiddist hann á landsliðsæfingu með Englandi fyrir leikinn gegn Belgíu í gærkvöldi. Er nú ljóst að hann þurfti að fara í aðgerð og verður frá út tímabilið. Þá mun hann einnig missa af Evrópumótinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert