Rosberg aftur fljótastur

Nico Rosberg á ferð í Spielberg í Austurríki í dag.
Nico Rosberg á ferð í Spielberg í Austurríki í dag. AFP

Nico Rosberg hjá Mercedes ók hraðast á seinni æfingu dagsins í Spielberg í Austurríki eins og á þeirri fyrri í morgun. Rigning varð til þess að ökumenn spöruðu bíla sína og héldu lengi vel kyrru fyrir í bílskúrum sínum.

Næsthraðast fór Lewis Hamilton liðsfélagi Rosberg og Nico Hülkenberg hjá Force India átti þriðja besta hring æfingarinnar. Munaði aðeins 19 þúsundustu úr sekúndu á liðsfélögunum. Rosberg fór hringinn á 1:07,967 mínútum en Hamilton á 1:07.986 og Hülkenberg á 1:08,580 mín.

Í sæ´tum fjögur til tíu á lista yfir hröðustu hringi æfingarinnar urðu - í þessari röð - Sebastian Vettel hjá Ferrari, Daniel Ricciardo hjá Red Bull, Carlos Sainz hjá Toro Rosso, Max Verstappen hjá Red Bull, Kimi Räikkönen hjá Ferrari, Valtteri Bottas hjá Williams og Jenson Button hjá McLaren. Munaði einni sekúndu á tíma Buttons og Rosberg.

Nico Rosberg leggur í aksturslotu í Spielberg í Austurríki í …
Nico Rosberg leggur í aksturslotu í Spielberg í Austurríki í dag. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert