Birkir Már Sævarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, átti fyrirgjöfina í fyrstu tveimur mörkum Hammarby í 5:1 sigri liðsins gegn Helsingborg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Birkir Már lék allan leikinn fyrir Hammarby, Ögmundur Kristinsson, landsliðsmarkvörður, stóð á milli hjá liðinu og þá lék Arnór Smárason einnig allan leikinn fyrir liðið.
Hammarby er með fjögur stig eftir að hafa leikið þrjá leiki í deildinni og situr í sjötta sæti deildarinnar.