Matthías valinn sá besti

Matthías Vilhjálmsson fagnar marki.
Matthías Vilhjálmsson fagnar marki. Ljósmynd/Rosenborg

Matthías Vilhjálmsson, leikmaður norska meistaraliðsins Rosenborg, var útnefndur maður leiksins hjá norska blaðinu Verdens Gang þegar Rosenborg gerði 3:3 jafntefli á útvelli gegn Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld.

Matthías, sem skoraði fyrsta mark Rosenborg og lagði upp annað mark í leiknum, fékk 7 í einkunn fyrir frammistöðu sína.

Matthías hefur spilað vel með norsku meisturunum á tímabilinu. Hann hefur skorað 5 mörk í deildinni og er annar markahæsti leikmaður Rosenborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert