Kristian fær nýjan þjálfara

Kristian Nökkvi Hlynsson.
Kristian Nökkvi Hlynsson. AFP/Maurice van Steen

Hollenski knattspyrnustjórinn John van't Schip lætur af störfum hjá stórliði Ajax þarlendis eftir tímabilið. 

Van't Schip tók við Ajax eftir nokkrar umferðir en fyrir það var liðið í fallsæti undir sjórn Maurice Steijn. Hefur hann náð að rétta úr kútnum en Ajax liðið er nú í fimmta sæti deildarinnar. 

Undanfarnar vikur hafa þó verið Ajax erfiðar en landsliðsmaðurinn Kristian Nökkvi Hlynsson er fastamaður í liðinu. 

Aðstoðarþjálfari Liverpool, Pep Lijnders, hefur verið orðaður við stöðu stjóra Ajax undanfarna daga en hann mun yfirgefa Liverpool í sumar ásamt Jürgen Klopp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert