Mæta frönskum sjóliðum

Frá leik liðs Rugby Íslands.
Frá leik liðs Rugby Íslands. mbl.is

Rugby Ísland mun keppa við áhafnarmeðlimi Franska herskipsins Monge sem  er hér á landi þessa daganna. Leikurinn fer fram á grasvellinum við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði kl 17:00 mánudaginn.

Lið Rugby Íslands er samansett af þeim tveim rugby liðum sem starfandi  eru hér á landi, Rugby félagi Reykjavíkur og Rugby félagi Kópavogs. Síðasti leikur sem Rugby Ísland tók þátt í var gegn áhafnarmeðlimum HMS St Albans fyrr í maí og fór sá leikur,  69:21 eftir harða baráttu beggja liða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert