Stjarnan minnkaði muninn

Frá viðureign HK og Stjörnunnar í kvöld.
Frá viðureign HK og Stjörnunnar í kvöld. mbl.is/Styrmir Kári

Stjarnan hafði betur gegn HK, 3:2, í þriðja úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitil karla í blaki en liðin áttust við í Fagralundi í kvöld.

HK vann fyrstu tvær hrinurnar, 25:20 og 25:19, en Stjörnumenn neituðu að gefast upp og unnu þrjár næstu hrinur og unna þar með leikinn. Stjarnan vann oddahrinuna með minnsta mun 16:14 og spennan var því mikil. 

HK er 2:1 yfir í einvíginu en vinna þarf þrjá leiki að að hampa Íslandsmeistaratitlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert