Sindri Hrafn tólfti í úrslitunum

Sindri Hrafn Guðmundsson lenti í tólfta sæti í úrslitum í …
Sindri Hrafn Guðmundsson lenti í tólfta sæti í úrslitum í kvöld. mbl.isStyrmir Kári

Sindri Hrafn Guðmundsson endaði í tólfta sæti í spjótkasti á heimsmeistaramóti ungmenna 19 ára og yngri í Eugene í Bandaríkjunum, en hann var að ljúka kastseríunni nú rétt í þessu.

Sindri kastaði 65,61 metra í fyrsta kasti og 62,74 metra í öðru, og hann var neðstur fyrir þriðja kast. Það var hins vegar ógilt, og hann komst því ekki í hóp átta bestu sem fengu þrjú köst til viðbótar og keppa um sjálfan heimsmeistaratitilinn.

Sindri kastaði 69,99 metra í undanúrslitum sem var fjórða besta kastið inn í úrslitin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert