Ronaldo æfði með McGregor um helgina

McGregor og Ronaldo.
McGregor og Ronaldo. Ljósmynd/Instagram

Nýkrýndur Evrópumeistari í knattspyrnu, Cristiano Ronaldo, heimsótti írska bardagakappann Conor McGregor um helgina. McGregor er um þessar mundir í æfingabúðum í Las Vegas í Bandaríkjunum.

Ronaldo er yfirlýstur aðdáandi Írans en knattspyrnukappinn er í fríi og nýtur lífsins eftir að hafa orðið Evrópumeistari með félögum sínum í portúgalska landsliðinu fyrir tveimur vikum síðan.

„Bróðir minn Ronaldo kom við í ræktinni í dag. Hann er skrímsli,“ skrifaði McGregor við mynd af þeim.

Þjálfari McGregors, John Kavanagh, smellti mynd af félögunum saman eins og sjá mér hér að neðan:

Great to see you bro!!💪🏽🔝

A photo posted by Cristiano Ronaldo (@cristiano) on Jul 24, 2016 at 3:48pm PDT

My brother Ronaldo dropped by the gym today! He is an animal. Thank you @cristiano, much respect! I will see you for that Forbes number 1 spot next year. #ThisIsTheMacLife

A photo posted by Conor McGregor Official (@thenotoriousmma) on Jul 24, 2016 at 5:01pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert