Deildarmeistaranir náðu forystu

Frá leik með HK.
Frá leik með HK. Ljósmynd/Blakdeild HK

Deildarmeistarar HK höfðu betur gegn Stjörnunni í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í blaki í dag, 3:0.

Fyrsta hrinan fór 25:21, önnur hrinan 25:14 og þriðja og síðasta hrinan fór 26:24 eftir mikla spennu. Vinna þarf tvo leiki til að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu. 

HK hafnaði í efsta sæti deildarinnar með 50 stig, en Stjarnan var í 4. sæti með 22 stig og búast því flestir við sigri HK í einvíginu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert