Kirui og Chelimo heimsmeistarar í maraþoni

Geoffrey Kipkorir Kirui kemur fyrstur í mark í dag.
Geoffrey Kipkorir Kirui kemur fyrstur í mark í dag. AFP

Geoffrey Kipkorir Kirui frá Kenía kom fyrstur í mark í maraþonhlaupi karla á HM í London í dag. Hann hljóp á 2:08,27 klukkutímum, sem er besti tími ársins. Rose Chelimo frá Brúnei kom fyrst í mark í kvennaflokki á tímanum 2:27,11 klukkutímum. 

Tamirat Tola frá Eþíópíu og Alphonce Simbu frá Tansaníu voru í öðru og þriðja sæti í karlaflokki. Edna Kiplagat frá Keníu og Amy Cragg frá Bandaríkjunum tóku silfur og brons í kvennaflokki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert