Jordan Spieth í toppbaráttunni

Jordan Spieth í San Antonio
Jordan Spieth í San Antonio AFP

Kylfingurinn ungi Jordan Spieth er í toppbaráttunni á opna Texas mótinu á PGA-mótaröðinni en mótið fer fram í San Antonio.

Spieth er á fjórum höggum undir pari eftir tvo hringi og er tveimur höggum á eftir Jimmy Walker sem er með forystuna. Ástralinn Aaron Baddeley er á fimm undir pari eins og Charley Hoffman. Kevin Na er á fjórum undir eins og Spieth.

Gamla kempan Phil Mickelson hefur náð sér ágætlega á strik í mótinu og er á 2 undir pari og gæti því blandað sér í baráttuna um sigurinn sem og Zach Johnson. Mickelson hefur ekki gengið vel á golfvellinum frá því hann vann Opna breska sumarið 2013.

Sterkur vindur hefur sett svip sinn á mótið eins og stundum gerist á golfvöllum í Texas og fyrir vikið er skorið ekki eins gott og menn eiga að venjast á PGA-mótum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert