Horchel hafði betur í bráðabana

Billy Horschel.
Billy Horschel. AFP

Bandaríkjamaðurinn Billy Horschel fagnaði sigri á Byron Nelson-mótinu í golfi í gærkvöldi en mótið er hluti af PGA-mótaröðinni.

Horchel og Ástralinn Jason Day voru jafnir á 12 höggum undir pari eftir hringina fjóra en Horschel hafði betur í bráðabana. Þeir léku 18. holuna sem er par fjórir og þar hafði Horchel betur og fagnaði sigri á sínu fjórða PGA-móti og sínum fyrsta sigri á mótaröðinni í þrjú ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert