Axel og Guðrún báru sigur úr býtum

Anna Sólveig Snorradóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Saga Traustadóttir.
Anna Sólveig Snorradóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Saga Traustadóttir. Ljósmynd/seth@golf.is

Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, bæði úr Golfkúbbnum Keili, sigruðu á Honda Classic-mótinu í Eimskipsmótaröðinni í golfi í dag. Leikið var á Urriðavelli um helgina hjá Golfklúbbnum Oddi en um er að ræða annað mót keppnistímabilsins 2017-18.

Axel lék hringina tvo þremur höggum betur en Andri Þór Björnsson úr GR. Axel, sem er núverandi Íslandsmeistari, lék á 5 höggum yfir pari samtals við erfiðar aðstæður á tveimur keppnishringjum á Urriðavelli. Andri Þór gerði harða atlögu að efsta sætinu á lokahringnum en Axel stóðst álagið og landaði nokkuð öruggum sigri.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili sigraði á öðru móti sínu í röð á Eimskipsmótaröðinni í golfi á yfirstandandi keppnistímabili. Auk sigursins í dag vann Guðrún Brá einnig Bose-mótið á Jaðarsvelli sem fram fór á Akureyri fyrir tveimur vikum.

Lokastaða efstu kylfinga í kvennaflokki:

1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK (76-75) 151 högg +9
2. Saga Traustadóttir, GR (82-76) 158 högg +16
3. Anna Sólveig Snorradóttir, GK (79 -81) 160 högg +18
4. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG (84- 78) 162 högg +20
5. Berglind Björnsdóttir, GR (84-85) 169 högg +27
6.-7. Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA (85-88) 173 högg +31
6.-7. Hrafnhildur Guðjónsdóttir, GO (85-88) 173 +31

Lokastaða efstu kylfinga í karlaflokki:

1. Axel Bóasson, GK (74-73) 147 högg +5
2. Andri Þór Björnsson, GR (79-71) 150 högg +8
3. Tumi Hrafn Kúld, GA (74-78) 152 högg +10
4. Ólafur Björn Loftsson, GKG (79-75) 154 högg +12
5. Vikar Jónasson, GK (79-76) 155 högg +13
6. Böðvar Bragi Pálsson, GR (83-73) 156 högg +14
7. Andri Már Óskarsson, GHR (79-78) 157 högg +15
8. Hákon Harðarson, GR (85- 75) 160 högg +18
9. Henning Darri Þórðarson, GK (84-78) 162 högg +20
10. Haukur Már Ólafsson, GKG (82-83) 165 högg +23

Andri Þór Björnsson, Axel Bóasson og Tumi Hrafn Kúld.
Andri Þór Björnsson, Axel Bóasson og Tumi Hrafn Kúld. Ljósmynd/seth@golf.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert