Gefumst aldrei upp

„Þetta leit nú ekki vel út hjá okkur um tíma, en við ætluðum ekki að gefast upp og náðum muninum í tvö mörk, en þá fórum við að flýta okkur aðeins of mikið enda erfitt að elta allan tímann,“ sagði Ester Óskarsdóttir í liði ÍBV eftir tapið gegn Gróttu í kvöld.

„Þetta var mjög hraðurleikur og við keyrðum á Gróttu þannig að þær náðu varla að stilla upp. Strákarnir okkar verða bara að halda uppi stolti Eyjamanna á morgun,“ sagði Estar og var að vonum ekkert allt of ánægð eftir tapið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert