Magnaður viðsnúningur Arons og félaga

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Ljósmynd/Melczer Zsolt

Aron Pálmarsson og félagar í ungverska meistaraliðinu Veszprém unnu stórsigur á liði Balatonfüredi í úrslitakeppninni þar í landi í dag, 35:24.

Sigurinn er magnaður fyrir þær sakir að Aron og félagar voru einu marki undir í hálfleik, 15:14. Þeir hins vegar keyrðu gjörsamlega yfir andstæðinginn í síðari hálfleik, skoruðu tuttugu og eitt mark gegn níu og uppskáru því ellefu marka sigur.

Aron skoraði fjögur mörk fyrir Veszprém í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert